Yfir þúsund manns hafa nú skráð sig í hóp á Facebook þar sem skorað er á stjórnvöld að setja af stað „alvöru rannsókn á hruninu nú þegar með hjálp Evu Joly og hennar tengslaneti.“ Þá er fólk einnig hvatt til að skrifa stjórnvöldum. Eva Joly var gestur Egils Helgasonar í gær en þar sagði hún að meintir efnahagsglæpir íslenskra auðjöfra kæmu aldrei fram nema yfirvöld beittu fullri hörku í rannsókninni. Eva sagði að gera þyrfti húsleitir hjá hinum grunuðu, því ekki væri nóg að bjóða þeim í viðtal og spyrja þá spurninga.
„Á Facebook eru meðlimir hópsins beðnir um að senda öllum þingmönnum eftirfarandi áskorun:
„Ég krefst þess að þingið setji á laggirnar alvöru rannsókn á hruninu og efnahagsbrotum þeim sem leiddu okkur í þá stöðu sem við erum nú komin í, stýrðri af erlendum rannsóknaraðilum sem hafa reynslu af rannsóknum stórfelldra efnahagsbrota.
Ég krefst þess að stjórnvöld og þing þiggi án undanbragða alla þá aðstoð sem Eva Joly getur veitt okkur sem og aðgang að tengslaneti hennar.
Að lokum krefst ég þess að núverandi stjórnvöld lýsi nú þegar yfir eindregnum vilja til að hrinda slíkri rannsókn af stað og geri bókstaflega allt sem í sínu valdi stendur til að tryggja að þetta verði að veruleika.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Safnað fyrir nýfædda stúlku sem berst fyrir lífi sínu
Reiknikúnstir lífeyrissjóðanna „óþolandi og ólíðandi“
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision