Þrýst á Jóhönnu að verða formaður
Töluverður þrýstingur er innan Samfylkingarinnar að Jóhanna Sigurðardóttir verði næsti formaður flokksins. Mynd: DV.
Mikill þrýstingur er innan Samfylkingarinnar á Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra að bjóða sig fram til formanns flokksins eftir að Ingibjörg Sólrún tilkynnti í gær að hún ætli að hætta við þátttöku í stjórnmálum.
Í hádegisfréttum RÚV kom fram að það væri samdóma álit fjölmargra þingmanna úr forystusveit flokksins að skynsamlegast væri að Jóhanna verði næsti formaður flokksins. Að minnsta kosti fram á næsta kjörtímabil og að mjög sé þrýst á hana að taka verkefnið að sér.
Landsfundur Samfylkingarinnar fer fram eftir þrjár vikur en þar verður nýr forysta kjörin. Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, ætlar ekki að sækjast eftir endurkjöri. Þá hafa þeir Dagur B. Eggertsson og Árni Páll Árnason ekki enn lýst yfir framboði til formanns en þeir hafa þó báðir gefið kost á sér sem varaformenn. Bæði Össur Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurðardóttir hafa neitað að ætla að taka verkefnið að sér en þau hafa gefið kost á sér í annað sæti á lista flokksins í Reykjavík.
Líkur eru þó leiddar að því að annaðhvort Jóhanna Sigurðardóttir eða Össur Skarphéðinsson bjóði sig fram til forystu í flokknum.
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 23:14
Ríkidæmi Rússa minnkar
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 22:43
Sex óku of hratt á Húsavík
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 22:33
Þrjú mótorhjóla- slys í dag
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 22:26
Trúin og lífsbaráttan
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 21:56
Flóðbylgjuviðvörun afturkölluð
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 21:32
Lögreglan fjarlægði pókerborð af sportbar
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 21:18
Katrín og Svandís leiða lista VG í Reykjavík
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 21:13
Lausir úr haldi lögreglu
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 20:58
Vilja dauðadóm yfir brennuvargi
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 20:54
Vill sameina vinstri flokkanna
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 20:17
Mynd af Pútín sem útsendara KGB
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 19:57
Flóðbylgjuviðvörun í kjölfar jarðskjálfta
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 19:42
„Kvikindisleg“ stýrivaxtalækkun
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 19:00
Sigurjón: „Steinerinn steinlá - aftur“
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 18:52
Tvíburabræður sluppu með skrekkinn
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 18:17
Stjórnarflokkarnir með meirihluta
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 18:04
Dauð mús í miðri salami rúllu
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 17:49
Jóhanna býður sig fram til formanns
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 17:44
Skora á HB Granda að hækka laun
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 17:29








