ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW

Táragasi beitt á Iron Maiden-tónleikum - Myndband

16:55 › 9. mars 2009
Það voru læti á Iron Maiden tónleikunum.

Það voru læti á Iron Maiden tónleikunum.

Lögreglan í Bogota, höfuðborg Kólumbíu, handtók yfir hundrað manns þegar stór og mikill hópur fólks reyndi að svindla sér inn á tónleika rokksveitarinnar Iron Maiden á laugardaginn. Þetta gerðist aðeins fáeinum klukkutímum fyrir tónleikana sjálfa sem voru haldnir í stórum almenningsgarði í höfuðborginni. Óeiðarlögregla beitti táragasi til að dreifa mannfjöldanum sem svaraði með því að kasta grjóti.

Óeirðirnar urðu til þess að nú íhuga stjórnvöld að banna alla þungarokkstónleika í höfuðborginni. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru um það bil tuttugu og fimm þúsund manns með miða á tónleikana. Liðsmenn Iron Maiden hafa ekki tjáð sig um óeirðirnar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.