ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.0° 2m/s E

Varasöm mengun yfir Reykjavík

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:50 › 9. mars 2009
Svifryk fór þrjá daga í röð yfir heilsuverndarmörk.

Svifryk fór þrjá daga í röð yfir heilsuverndarmörk.

Svifryk fór þrjá daga í röð yfir heilsuverndarmörk í Reykjavík í síðustu viku en samkvæmt upplýsingum frá Umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar er ekki búist við svifryksmengun næstu daga. Heilsuverndarmörk svifryks eru fimmtíu míkrógrömm á rúmmetra en samkvæmt mælistöð við Grensásveg var mengunin 61 á fimmtudaginn.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir meðal annars:

„Heilsuverndarmörk svifryks(PH10) eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Sólarhringsstyrkur svifryks við Grensásveg reyndist 61 fimmtudaginn 5. mars, 54,1 á föstudag og 55,6 á laugardag. Við Steinahlíð reyndist hann 50,4 á fimmtudag og 51,4 á föstudag. Styrkurinn mældist undir heilsuverndarmörkum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum þar sem ein mælistöðin er staðsett.“

Guðbjartur Sigfússon deildarstjóri gatna hjá Reykjavíkurborg segir að sterkari saltblöndu til rykbindingar hafi verið úðað á helstu umferðagötur á sunnudagsnótt og býst hann við að hún dugi í þrjá daga.

Svifryk getur verið hættulegt fyrir ung börn og aldraða, sem og þá sem eru viðkvæmir fyrir í lungunum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.