ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.9° 4m/s E

Segir ótta ríkja innan Samfylkingar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:43 › 9. mars 2009
Björn segir að innviðir Samfylkingarinnar séu veikir og að þar ríki ótti innandyra.

Björn segir að innviðir Samfylkingarinnar séu veikir og að þar ríki ótti innandyra. Mynd: Eggert Jóhannsson

Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að innviðir Samfylkingarinnar séu veikir og þar ríki ótti við að upp úr sjóði milli stríðandi fylkinga. Þetta segir Björn í kjölfar frétta um ákvörðun Ingibjargar Sólrúnar um að hætta afskiptum af stjórnmálum – að sinni.

Þrjár vikur eru í að Samfylkingin gangi til landsþings þar sem nýr formaður verður kjörinn. „Í dag tala hugsanlegir frambjóðendur óljósum orðum um áform sín en Jóhanna Sigurðardóttir og Össur Skarphéðinsson segjast ekki ætla að gefa kost á sér. Þrátt fyrir yfirlýsingu Jóhönnu er látið eins og lagt verði svo hart að henni að gefa kost á sér til formanns, að hún geti annað en látið undan þrýstingnum, enda muni allir máttarstólpar flokksins beita honum. Að telja vinnubrögð af þessu tagi sjálfsögð í stað þess að ganga hreinlega til formannskosninga, sýnir, hve innviðir Samfylkingarinnar eru veikir og hve mikill ótti ríkir þar innan dyra við að upp úr sjóði milli stríðandi fylkinga,“ segir Björn.

Björn segir að þessi þörf fyrir foringjaræði sé í senn arfur frá sósíalistaflokknum og arftaka hans Alþýðubandalaginu frá Alþýðuflokknum. Flokkarnir hafi klofnað út og suður í áranna rás og vilja foringjarnir frekar nota plástra en að sárin opnist. „Jóhanna átti þátt í einum klofningi með því að stofna Þjóðvaka árið 1994. Síðan vita samherjar hennar, að hún er til alls vís, fái hún ekki sitt fram. Óðagotið á ríkisstjórn Jóhönnu endurspeglar pólitískt skapferli hennar. Þar eiga helst allir hlutir að gerast í gær.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.