ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW

Segir Jóhönnu neyðast til að verða formaður

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:28 › 9. mars 2009
Jóhanna er með teflon-húð segir Jónas.

Jóhanna er með teflon-húð segir Jónas. Mynd: DV

„Þótt henni sé það óljúft, neyðist Jóhanna Sigurðardóttir til að taka við formennsku af Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttir.“ Þetta segir Jónas Kristjánsson, bloggari og fyrrverandi ritstjóri, á heimasíðu sinni í dag. Miklar vangaveltur eru uppi um hver verður næsti formaður Samfylkingarinnar eftir að Ingibjörg Sólrún tilkynnti í gær að hún ætli að hætta í stjórnmálum af heilsufarsástæðum.

„Við aðstæður, þar sem enginn framámaður Samfylkingarinnar nýtur trausts, er Jóhanna eina skjólið. Hún hefur breitt bak með teflon-húð, sem flokkurinn þarf að misnota næstu tvö árin. Allir aðrir, sem girnast embættið, eru vanbúnir, benda á hana. Þar á meðal Dagur, Lúðvík og Jón Baldvin. Hún verður að þola að bera gamlan vanhæfnisflokk á bakinu. Þola að þreyja þorrann meðan hann sleikir sárin. Ég sé ekki, að hún geti hafnað örvæntingu laskaðs flokks á gjörgæzludeild,“ segir Jónas.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.