Björk Eiðsdóttir, blaðamaður Vikunnar, undirbýr nú málsókn gegn Þorsteini Pálssyni, ritstjóra Fréttablaðsins fyrir hönd Fréttablaðsins, og Ásgeiri Davíðssyni, eiganda Goldfinger, vegna ummæla þess síðarnefnda sem höfð voru eftir honum í viðtali nú í vikunni sem leið.
Blaðamaðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson tók viðtalið en þar kallar Ásgeir Vikuna sorprit og að mati Bjarkar vó hann að starfsheiðri hennar. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem grein eftir Jakob Bjarnar veldur fjaðrafoki en í þessu tilfelli er hann laus allra máli þar sem hann var aðeins skráður sem jbg@visir.is undir fréttinni. Ábyrgðin fellur því á Fréttablaðið.
„Ég er bara miðill, það er málfrelsi á Íslandi og ég er einfaldlega að hafa þetta eftir viðmælanda," segir Jakob Bjarnar og bætir við: „Mér finnst Björk vera komin í húrrandi mótsögn við sjálfa sig.“
„Mínir lögmenn hafa tjáð mér að miðað við dóminn gegn mér þá sé réttast að stefna Þorsteini Pálssyni ritstjóra Fréttablaðsins vegna ummæla Ásgeirs Davíðssonar í blaði hans,“ segir Björk sem var gert að greiða Ásgeiri hálfa milljón í skaðabætur eftir dóm Hæstaréttar. Héraðsdómur hafði áður sýknað Vikuna og Björk af kröfum Ásgeirs.
„Það verður því áhugvert að vita hvort þær forsendur að blaðamaður beri ábyrgð á ummælum viðmælanda eigi aðeins við í þessu tiltekna máli Ásgeirs gegn mér eða hvort blaðið beri einnig ábyrgð í þessu tilfelli,” segir Björk.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision
Vítamín í vörina: Tóbaksgjald hindrar innflutning
Reykjavíkurborg dæmd til að greiða Frjálslyndum 6,7 milljónir