Jóhann Hauksson
johannh@dv.is
Sjálfstæðimenn á Alþingi krefjast þess að rædd verði þingmál sem varða atvinnumál og hag fyrirtækja og heimila en umræðu um breytingar á stjórnarskrá verði frestað. Samkvæmt dagskrá þingsins í dag er ætlunin að halda áfram umræðu um stjórnskipunarlög, þar á meðal umræðu um stjórnlagaþing og þjóðareign auðlinda.
Sigurður Kári Kristjánsson, Sjálfstæðisflokki, spurði auk þess hvort frumvarp um álver í Helguvík væri í raun stjórnarfrumvarp þar sem VG styddi það ekki. Frumvarpið gerir ráð fyrir að stjórvöldum verði heimilt að ganga til samninga við Century Aluminium - Norðurál um smíði álvers í Helguvík.
Century hefur slegið framkvæmdum þar á frest vegna verðfalls á áli og hraðminnkandi sölu.





Fanney Þorbjörg: „Ég ætla aldrei að æfa skíði aftur“
Páll Óskar: „Ísland á að draga sig útúr Eurovision“
Kona réðst að öryggisverði í 10-11
Á ótryggðum bíl vegna gjaldþrots án þess að vita það
Vatnskóngurinn opnar tískuskóla