Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Konan á myndinni er sérlega áhættusækin í kaffidrykkju og gæti þurft á tryggingu að halda. Myndin er sviðsett.
Alþjóðlega kaffihúsakeðjan Costa Coffee hefur tryggt tungu kaffismakkara síns fyrir tæplega fjórtán milljónir bandaríkjadala.
Kaffismakkarinn, Gennaro Pelliccia, bragðar persónulega á hverjum skammti kaffibauna, í verksmiðju keðjunnar í Lundúnum, áður en baunirnar eru ristaðar og sendar í útibúin.
„Átján ára reynsla mín gerir mér kleift að gera greinarmun á þúsundum bragðtegunda,“ segir Pelliccia, en Costa Coffee selur um eitthundrað milljónir kaffibolla á hverju ári um allan heim og stefnir að því að tvöfalda fjölda sölustaða sinna.
Tungan dýrmæta var tryggð hjá Lloyds-tryggingafélaginu í Lundúnum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu