Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráherra, segir að nú þegar gæti jákvæðra viðbragða á fjármálamarkaði í kjölfar þess að nýjir menn voru settir yfir Seðlabanka Íslands. Sömuleiðis séu viðbrögð jákvæð við nýrri peningastefnunefnd bankans.
Þetta kom fram í máli Jóhönnu í utandagskrárumræðu á Alþingi í dag um endurreisn atvinnulífsins sem Birkir J.Jónsson, Framsóknarflokki, óskaði eftir.
Jóhanna sagði að verðbólgan mældist nú 17,6 prósent og hefur því lækkað um eitt prósentustig frá síðasta mánuði. Hún kvaðst búast við hratt lækkandi verðbólgu og lækkun vaxta, en næsti vaxtalækkunardagur Seðlabankans er 19. mars.
Bjarni Benediktsson, Sjálfstæðisflokki, sagði að fyrir lægju upplýsingar um lánasöfn nýju bankanna og erfitt væri að ræða endurreisn atvinnulífsins án þess að þær kæmu fram. Hann lýsti efasemdum um að nýju bankarnir ættu að taka yfir erfið lán fyrirtækja, slíkt væri of mikil áhætta fyrir ríkissjóð. Þau ættu betur heima í gömlu bönkunum.
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sagði í umræðunum að dýpkandi alþjóðakreppa væri útflutningsgreinunum mótdræg. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lyki úttekt sinni á stöðu þjóðarbúsins í vikunni . Í ljós hefði komið að heildarskuldsetning væri meiri en AGS áætlaði upphaflega, einkum vegna meiri skulda einkaaðila. Þá væri tekjufall og atvinnuleysi heldur meira en sjóðurinn hefði áætlað.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Safnað fyrir nýfædda stúlku sem berst fyrir lífi sínu
Reiknikúnstir lífeyrissjóðanna „óþolandi og ólíðandi“
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision