Gamlir menn eignast heimskari börn
Hinn vinsæli bandaríski sjónvarpsmaður Larry King eignaðist sitt fimmta barn þegar hann var 65 ára. Það er kannski ekki það sniðugasta samkvæmt nýjustu rannsóknum.
Ástralskt rannsóknarteymi við Queensland háskóla í Ástralíu hefur komist að því að gamlir menn eignast heimskari börn en þeir sem yngri eru. Börn manna í eldri kantinum eru einnig líklegri til að verða einhverf og glíma við geðklofa.
Rannsóknarteymið fylgdist með 33 þúsund amerískum börnum í aldurshópunum átta mánaða, fjögurra ára og sjö ára. Niðurstöður rannsókna sýndu fram á að börn sem áttu aldraða feður stóðu sig verr í gáfnaprófum en þau börn sem áttu feður í yngri kantinum.
Í rannsókn teymisins var einbeiting, minni, skynsemi og lestrarhæfileikar barnanna prófaðir.
Niðurstöður ransóknarinnar koma John McGrath hjá háskólanum í Queensland mjög á óvart.
„Sagan segir að börn sem eiga gamla foreldra fái betri möguleika og meiri umhyggju sem styrkir andlega getu þeirra. Það er tilfellið hjá börnum sem eiga eldri mæður en ekki hjá börnum sem eiga eldri feður sem kemur mjög á óvart,“ segir McGrath við fjölmiðilinn New Scientist.
Að sögn McGrath er útskýringu á þessu að finna í að genagalli í frumum sem framleiða sæði sé algengari meðal eldri karlmanna. Það varpar líka ljósi á af hverju börn sem eiga gamla foreldra eru líklegri til að verða einhverf og glíma við geðklofa.
„Mér finnst að við höfum ekki nægar sannanir til að segja karlmönnum að verða ekki feður á efri árum. Ennfremur finnst mér það skylda mín að segja fólki frá að það er viss áhætta sem felst í því sem var ekki ljós áður,“ segir McGrath.
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 23:14
Ríkidæmi Rússa minnkar
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 22:43
Sex óku of hratt á Húsavík
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 22:33
Þrjú mótorhjóla- slys í dag
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 22:26
Trúin og lífsbaráttan
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 21:56
Flóðbylgjuviðvörun afturkölluð
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 21:32
Lögreglan fjarlægði pókerborð af sportbar
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 21:18
Katrín og Svandís leiða lista VG í Reykjavík
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 21:13
Lausir úr haldi lögreglu
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 20:58
Vilja dauðadóm yfir brennuvargi
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 20:54
Vill sameina vinstri flokkanna
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 20:17
Mynd af Pútín sem útsendara KGB
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 19:57
Flóðbylgjuviðvörun í kjölfar jarðskjálfta
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 19:42
„Kvikindisleg“ stýrivaxtalækkun
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 19:00
Sigurjón: „Steinerinn steinlá - aftur“
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 18:52
Tvíburabræður sluppu með skrekkinn
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 18:17
Stjórnarflokkarnir með meirihluta
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 18:04
Dauð mús í miðri salami rúllu
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 17:49
Jóhanna býður sig fram til formanns
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 17:44
Skora á HB Granda að hækka laun
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 17:29








