ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.9° 4m/s E

Gamlir feður eignast verr gefin börn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:47 › 9. mars 2009
Andlegur þroski eldri foreldra virðist ekki vega upp á móti neikvæðum genetískum áhrifum.

Andlegur þroski eldri foreldra virðist ekki vega upp á móti neikvæðum genetískum áhrifum.

Ástralskir vísindamenn hafa komist að því að eldri menn eignast verr gefin börn en yngri karlmenn. Eftir að hafa greint rannsóknargögn yfir 33.000 bandarískra barna, átta mánaða, fjögurra ára og sjö ára, komust vísindamennirnir að því að börnin sem áttu gamla feður komu verst út úr greindarvísitöluprófum.

Í prófunum reyndi á einbeitingu, minni, rökvísi og lestrargetu.

Leiða vísindamennirnir að því líkur að erfðagallar þeirra frumna sem framleiða sæði versni með aldrinum. Þá skýringu má einnig heimfæra upp á þá staðreynd að börnum eldri karlmanna er hættara við geðklofa og einhverfu, segir í tímaritinu New Scientist.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.