Fylgdarsveinn og elskhugi Susanne Klatten, ríkustu konu Þýskalands, hefur verið dæmdur til sex ára fangelsisvistar eftir að hann játaði að hafa beitt hana og fleiri konur fjárkúgun þar sem hann krafðist andvirði milljóna bandaríkjadala.
Susanne Klatten, erfingi BMW bifreiðaveldisins, hafði sambandi við lögregluyfirvöld á síðasta ári og sagði sínar farir ekki sléttar í samskiptum við Helg Sgarbi, fylgdarsvein sinn. Að sögn Klatten hótaði Helg að birta ljósmyndir af þeim, nema hún borgaði honum um sextíu milljónir bandaríkjadala.
Í skriflegri játningu viðurkenndi Helg Sgarbi að hafa beitt fórnarlömb sín fjárkúgun og að hafa logið að þeim, en upplýsti hvorki hvað hefði orðið af tólf og hálfri milljón dala sem hann hafði haft af fórnarlömbum sínum, né hvar ljósmyndirnar sem hann hugðist nota væru niðurkomnar.
Ríkissaksóknari Þýskalands, Anton Winkler sagði að í raun væri aðeins um hálfa játningu að ræða, af hálfu Sgarbi. „Við spurðum hann hvar féð væri, um samverkamenn og myndbönd... og hann neitaði að tjá sig um það,“ sagði Winkler.
Susanne Klatten, sem er gift, þriggja barna móðir, átti í ástarævintýri með Sgarbi. Svo fór að hann bað hana um pening og mun hún hafa látið hann hafa eitthvað fé í upphafi, en þegar hún neitaði að láta hann fá meira fé hótaði Sgarbi að senda vafasöm myndbönd til eiginmanns hennar og fjölmiðla.
Í janúar á síðasta ári var Susanne nóg boðið og hafði samband við lögregluna, þrátt fyrir vissuna um að lenda í sviðsljósi fjölmiðla og almennings, og sagðist vera fórnarlamb svika og fjárkúgunar.
Susanne Klatten er dóttir Herbert Quandt heitins, forstjóra BMW, og á 12,5 prósenta hlut í versmiðjunni. Auk þess á hún 51,1 prósenta hlut í efnaverksmiðjunni Altana. Susanne er í 55. sæti á lista Forbes yfir ríkasta fólk heims, og er metin á 13,2 milljarða bandaríkjadala.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision
Vítamín í vörina: Tóbaksgjald hindrar innflutning
Reykjavíkurborg dæmd til að greiða Frjálslyndum 6,7 milljónir