ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW

Fékk bætur vegna eftirlitsbúnaðar lögreglu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:05 › 9. mars 2009
Lögreglan mátti ekki hlera síma mannsins eða nota eftirlitsbúnað á bifreið hans.

Lögreglan mátti ekki hlera síma mannsins eða nota eftirlitsbúnað á bifreið hans.

Karlmanni á fertugsaldri, sem fór í mál við lögregluna eftir að hafa fundið eftirlitsbúnað á bifreið sinni í nóvember 2007, voru í dag dæmdar bætur að upphæð 250 þúsund krónur með vöxtum. Fram kemur í dómnum að á þeim tíma sem búnaðurinn var notaður voru engar heimildir til í lögum sem heimiluðu slíka notkun. Þær heimildir eru þó til staðar í dag en þær tóku gildi 1. janúar.

Samkvæmt dómsskjölum hleraði lögreglan einnig síma mannsins en ekkert kom út úr rannsókninni. Héraðsdómur Reykjavíkur taldi íslenska ríkið ekki hafa sýnt fram á að nægilegt tilefni hafi verið fyrir þeim símhlerunum og að notkun eftirlitsbúnaðarins hafi verið ólögleg.

Í dómnum stendur meðal annars:

„Við ákvörðun miskabóta verður meðal annars til þess horft að eftirfararbúnaðurinn hafði einungis verið á bifreið stefnanda í þrjá daga þegar hann fannst. Að virtum atvikum öllum þykja miskabætur til stefnanda vegna uppsetningar þessa búnaðar og símahlerana hjá honum hæfilega ákveðnar 250.000 krónur. Ber stefnda að greiða þá fjárhæð með vöxtum eins og í dómsorði greinir.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.