Innistæður hjá Straumi, sem ríkið ábyrgist, nema um 60 milljörðum króna. Þetta upplýsti Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra á þingi í dag. Hann sagði að allt benti til þess að Straumur ætti eignir á móti þessum skuldbindingum og því væru ekki horfur á að fall bankans í morgun íþyngi fjármálum ríkisins að þessu leyti.
Viðskiptaráðherra sagði jafnframt að meðferð eigna og skulda bankans væru nú í höndum skilanefndar og ekki stæði til að reka bankann áfram með sama sniði og bankana þrjá sem ríkið tók yfir í október síðastliðnum.
Sigurður Kári Kristjánsson, Sjálfstæðisflokki, spurði viðskiptaráðherra um framhald málsins og sagði það djúpstæð og mikil vonbrigði að bankinn skyldi ekki standast álagið. „Við vonuðum að Straumur myndi lifa þetta af.“
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, bætti við að yfirvofandi hefðu verið aðgerðir af hálfu breska fjármálaeftirlitsins vegna lausafjárskorts Straums. Hún sagði áhrif falls Straums hverfandi miðað við fall stóru bankanna. Þetta væri tilfinnanlegt fyrir starfsfólk bankans.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Safnað fyrir nýfædda stúlku sem berst fyrir lífi sínu
Reiknikúnstir lífeyrissjóðanna „óþolandi og ólíðandi“
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision