Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Vélbáturinn Hrönn ÍS sökk í höfninni á Ísafirði á laugardaginn. Lögreglan á Vestfjörðum fékk einnig tilkynningu um að vélbáturinn Jón forseti væri að sökkva en sá bátur var bundinn utan á Hrönn. Kallaðir voru til hafnarstarfsmenn og bátaflokkur Björgunarfélags Ísafjarðar til aðstoðar.
Hægt var að koma í veg fyrir að Jón forseti sykki og var hann færður annað í höfninni. Ekki er vitað um orsakir þess að Hrönn sökk en unnið verður að því að koma bátnum aftur á flot í dag.





Fanney Þorbjörg: „Ég ætla aldrei að æfa skíði aftur“
Páll Óskar: „Ísland á að draga sig útúr Eurovision“
Kona réðst að öryggisverði í 10-11
Á ótryggðum bíl vegna gjaldþrots án þess að vita það
Vatnskóngurinn opnar tískuskóla