Spáð er „vori óánægju“ í Austur-Evrópu og lögregluyfirvöld Bretlands eru uggandi vegna yfirvofandi „sumri ofsa“. Hvort spáin varðandi Austur-Evrópu gengur eftir og ótti bresku lögreglunnar reynist réttmætur verður tíminn að leiða í ljós. Hvað Bandaríkin áhrærir velkist rússneskur fræðimaður ekki í vafa um örlög þeirra. Igor Panarin spáir hruni Bandaríkjanna innan tveggja ára.
Stjórnvöld í Bretlandi hafa nú um stundir miklar áhyggjur af komandi sumri og þar í landi er talað um „sumar ofsans“. Lögregla landsins telur ekki loku fyrir það skotið að fórnarlömb fjármálakreppunnar streymi á götur út og láti reiði sína bitna á fjármálastofnunum.
Háttsettir lögregluforingjar sem bera ábyrgð á röð og reglu á meðal almennra borgara hafa ýjað að því að endurtekning á óeirðunum á níunda áratug síðustu aldar sé handan við hornið og að þeir sem misst hafa vinnu, heimili eða sparifé verði „fótgönguliðar“ í ofbeldisfullum fjöldamótmælum.
Á meðal hugsanlegra skotmarka reiðs almennings eru bankastofnanir sem enn greiða stjórnendum sínum háar bónusgreiðslur þrátt fyrir að hafa þegið svimandi háar upphæðir í björgunaraðgerðum ríkisstjórnarinnar, upphæðir sem enda á herðum skattgreiðenda þegar upp verður staðið.
Í viðtali við breska dagblaðið The Guardian sagði David Hartshorn aðstoðaryfirlögregluþjónn að þess væru merki að andrúmsloft í mótmælaaðgerðum væri að breytast og ljóst að aðgerðasinnar væru í meira mæli staðráðnir í að láta til sín taka á götum úti og valda óreiðu.
Meginland Evrópu
Áhyggjur lögreglu og stjórnvalda á Bretlandi eru kannski ekki úr lausu lofti gripnar og ekki þarf að leita langt til að sjá afleiðingar kreppunnar í verki á meginlandi Evrópu. Grískir bændur lokuðu mikilvægum umferðaræðum til að mótmæla lækkandi verði á landbúnaðarafurðum, um milljón franskra verkamanna tók höndum saman og krafðist aukins atvinnuöryggis og búsáhaldabyltingin á Íslandi verður sennilega skráð í sögubækurnar.
Austur-Evrópa hefur ekki farið varhluta af óánægju og reiði almennings sem finnst lítið til aðgerða ríkisstjórna landa sinna koma og sérfræðingar í málefnum þess hluta Evrópu eru uggandi um að almenningur grípi til ofbeldis á sumri komandi og hafa talað um „vor óánægju“ í því sambandi. Nú þegar hefur sorfið til stáls í Litháen, Lettlandi, Búlgaríu og Lettlandi, og talið að svipað kunni að verða uppi á teningnum með vorinu.
Vatn á myllu öfgahópa
Í janúar mótmæltu hundruð starfsmanna olíuhreinsunarstöðva í Bretlandi því að erlendir verkamenn væru fengnir til starfa. Ekki er ólíklegt að aðgerðir sem upphaflega hefjast vegna aðgerða, eða aðgerðaleysis, stjórnvalda verði vatn á myllu öfgahópa sem er í nöp við útlendinga og farandverkamenn og nærast á kynþáttafordómum.
Sú varð raunin í Tékklandi undir lok síðasta árs þegar sló í brýnu á milli hægri öfgasinna og lögreglu þegar hinir fyrrnefndu hugðust fara inn í sígaunahverfi í borginni Litvinov.
Aðgerðasinnar kunna hugsanlega að nýta sér óánægju almennings og David Hartshorn telur að slíkt kunni að verða raunin í Bretlandi. Samkvæmt skýrslum öryggislögreglunnar hafa „þekktir aðgerðasinnar“ farið á götur út. „Þessum einstaklingum yrði létt að virkja aðra en þeir hafa ekki haft „fótgönguliða“ til að halda úti mótmælum,“ sagði Hartshorn.
Hartshorn sagði að mikilvægasta verk lögreglunnar ef til fjöldamótmæla kæmi yrði að tryggja að aðgerðasinnar geri ekki mótmælin að sínum og breyti friðsamlegum mótmælum í ofbeldisverknað. Bæði „hægri öfgamenn og vinstri öfgamenn“ munu reyna að nýta sér óánægju fólks.
Hrun Bandaríkjanna
Igor Panarin er skólastjóri skóla utanríkisráðuneytis Rússlands fyrir verðandi sendifulltrúa. Panarin er ómyrkur í máli hvað varðar nánustu framtíð Bandaríkjanna. Ef spá Panarins gengur eftir mun Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, setja á herlög í landinu á þessu ári og til lengri tíma litið munu Bandaríkin skiptast í sex fylki. Panarin spáir því að það muni gerast fyrir 2011 og Rússland og Kína verði ný burðarríki á heimsvísu.
„Það eru miklar líkur á að hrun Bandaríkjanna muni eiga sér stað í kringum 2010,“ sagði Igor Panarin á þriðjudaginn við fjölda námsmanna, prófessora og sendifulltrúa í fyrirlestri í skólanum sem hann veitir forstöðu.
Igor Panarin var á árum áður talsmaður geimferðastofnunar Rússlands og talinn hafa verið greinir leyniþjónustu Sovétríkjanna KGB sem var og hét. Spá hans dregur dám af neikvæðum umsögnum síðari ára af hálfu Kremlverja um Bandaríkin, en Vladimír Pútín, forsætisráðherra og fyrrverandi forseti Rússlands, hefur líkt Bandaríkjunum við Þýskaland Hitlers og skellir skuldinni af efnahagskreppunni á ráðamenn í Washington.
Siðferðileg hnignun
Igor Panarin fór ekki náið út í það sem hann lagði til grundvallar spá sinni en hafði á orði að hann hefði spáð hnignun auðugustu þjóðar heims í meira en áratug. Hann sagði að nýleg fjármálaólga og önnur „félags- og menningarleg fyrirbæri“ hafi gert honum kleift að tiltaka sérstakan tímaramma fyrir „Endinn“ þegar Bandaríkin myndu skiptast upp í sex sjálfstjórnarsvæði og Alaska myndi fara aftur undir stjórn Rússa.
Panarin hélt því fram að Bandaríkjamenn ættu við siðferðilega hnignun að stríða og að streita þeirra væri augljós vegna fjöldamorða í skólum, fjöldanum sem dvelur á bak við lás og slá og fjölda samkynhneigðra. „Það sem átt hefur sér stað er hrun bandaríska draumsins,“ sagði hann.
Igor Panarin sagðist ekki óska Bandaríkjunum þessara örlaga en hann hefði þá trú að Kína og Rússland risu sterkari úr ösku efnahagskreppunnar og ættu að vinna saman og jafnvel stofna nýjan gjaldmiðil til að leysa bandaríska dalinn af hólmi.
Á fyrirlestrinum var Panarin spurður hvort ekki væri hægt að heimfæra lýsingar hans upp á Rússland, sem glímir við verstu kreppu í áratug, en Panarin vísaði þeim möguleika á bug: „Hrun Rússlands mun aldrei verða.“





Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu