75 ára dæmd til hýðinga
Sádí arabískur dómstóll hefur dæmt 75 ára gamla konu frá Sýrlandi til 40 hýðinga með svipu. Auk þess þarf konan að sitja fjóra mánuði í fangelsi. Konunni var gefið að sök að hafa verið ein í húsi með tveimur karlmönnum sem voru henni ekki tengdir.
Það var á síðasta ári sem fulltrúi trúarlögreglunnar í Sádí Arabíu kom inn í íbúð konunnar. Þar voru tveir menn, þeir Fahd og Hadian. Fahd sagði að hann hefði þekkt konuna síðan hann var lítill og hann liti á hana sem móður sína. Hann hafi verið þar í kurteisisheimsókn. Hadian sagðist vera vinur Fahds og þeir hefðu komið með brauð handa henni.
Engu að síður taldi lögreglumaðurinn að konan hefði gerst brotleg við íslömsk lög. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem sádí arabískir dómstólar kveða upp einkennilega dóma. Þannig var nítján ára stúlka, sem var fórnarlamb hópnauðgunar, dæmd til 200 hýðinga og sex mánaða fangelsis fyrir að hitta mennina. Árásarmennirnir fengu hinsvegar frá tíu mánaða til fimm ára fangelsis.
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 23:14
Ríkidæmi Rússa minnkar
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 22:43
Sex óku of hratt á Húsavík
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 22:33
Þrjú mótorhjóla- slys í dag
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 22:26
Trúin og lífsbaráttan
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 21:56
Flóðbylgjuviðvörun afturkölluð
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 21:32
Lögreglan fjarlægði pókerborð af sportbar
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 21:18
Katrín og Svandís leiða lista VG í Reykjavík
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 21:13
Lausir úr haldi lögreglu
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 20:58
Vilja dauðadóm yfir brennuvargi
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 20:54
Vill sameina vinstri flokkanna
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 20:17
Mynd af Pútín sem útsendara KGB
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 19:57
Flóðbylgjuviðvörun í kjölfar jarðskjálfta
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 19:42
„Kvikindisleg“ stýrivaxtalækkun
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 19:00
Sigurjón: „Steinerinn steinlá - aftur“
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 18:52
Tvíburabræður sluppu með skrekkinn
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 18:17
Stjórnarflokkarnir með meirihluta
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 18:04
Dauð mús í miðri salami rúllu
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 17:49
Jóhanna býður sig fram til formanns
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 17:44
Skora á HB Granda að hækka laun
Fimmtudagur 19. mars 2009 kl 17:29








