ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Helmingur vill hvorki Ingibjörgu né Jón Baldvin

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:41 › 7. mars 2009
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Jón Baldvin Hannibalsson á landsfundi Samfylkingarinnar.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Jón Baldvin Hannibalsson á landsfundi Samfylkingarinnar.

Fleiri styðja Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur en Jón Baldvin Hannibalsson til formanns Samfylkingarinnar, samkvæmt niðurstöðum í nýrri könnun MMR. 35,1% sögðust vilja Ingibjörgu frekar en Jón Baldvin en 19% vildu heldur Jón. 45,9% vildu hvorugt þeirra.

Ef einungis er litið til þeirra sem sögðust ætla að kjósa Samfylkinguna kemur í ljós að rúm 68% vilja heldur að Ingibjörg Sólrún leiði Samfylkinguna en tæp 13% sögðust vilja Jón Baldvin frekar. Tæpur fimmtungur væntanlegra kjósenda Samfylkingarinnar vilja hvorki Ingibjörgu Sólrúnu né Jón Baldvin, eða 19,1%.

Könnunin var framkvæmd dagana 3.-5. mars og var heildarfjöldi svarenda 891 einstaklingur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.