Samfylkingin er nú stærsti stjórnmálaflokkurinn en hún mælist með 30,5 prósenta fylgi í nýrri könnun MMR á fylgi stjórnmálaflokka og stuðningi við ríkisstjórnina.
Þar kemur fram að fylgi Framsóknarflokksins heldur áfram að dala en fylgi Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins breytist lítið.
Rétt yfir helmingur svarenda segist styðja ríkisstjórnina.
Eins og áður segir mælist fylgi Samfylkinarinnar nú 30,5 prósent sem er veruleg aukning frá síðustu könnun í febrúar þegar fylgið mældist 24,1 prósent. Fylgi Framsóknarflokksins fer úr 14,9 prósentum í febrúar í 10 prósent nú.
VG mælist með 22,7 prósenta fylgi og Sjálfstæðisflokkurinn 29,3.
5,3 prósent geta hugsað sér að kjósa aðra stjórnmálaflokka en þá sem buðu sig fram síðast sem er minna en í síðustu könnun.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
