ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Vill giftast raðmorðingja

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:38 › 5. mars 2009
Bianca prýðir siður nýjasta heftis That's Life.

Bianca prýðir siður nýjasta heftis That's Life.

Hinn ástralski James Vlassakis stóð bak við ellefu morð ásamt þremur öðrum í ástralska bænum Snowtown á árunum 1992 til 1999. Hann var dæmdur í fangelsi til ársins 2025 fyrir fjögur morð en í september ætlar hann að kvænast Biöncu Roberts, kærustu sinni til sjö ára.

Bianca og James voru kærustupar þegar þau voru ung en þegar hún skrifaði honum í fangelsið var eins og nýju lífi væri blásið í gamlar ástarglæður og þau byrjuðu saman aftur.

„Við erum búin að vera saman í næstum því sjö ár. Ég vildi óska að við gætum verið saman eins og eðlileg pör en það er ekki hægt að stjórna því hvern maður elskar. Ég er tilbúin að bíða eftir James þó ég þurfi að bíða til ársins 2025,“ segir Bianca í samtali við ástralska tímaritið That's Life.

„Ég veit að margir skilja ekki af hverju ég vil giftast raðmorðingja. Þetta verður örugglega mjög óhefðbundið samband en James hefur alltaf verið maðurinn í lífi mínu og nú verður hann eiginmaðurinn minn. Það sem hann hefur gert heyrir fortíðinni til og nú einblínum við á framtíð okkar saman. Hún verður full af ást og skilning sem hann hefur ekki fengið í sínu lífi,“ segir Bianca en parið gengur í það heilaga 2. september næstkomandi.

Á árunum 1992 til 1999 myrti James ásamt þremur öðrum ellefu manns, þar á meðal hálfbróðir sinn. James og félagar myrtu einstaklinga sem þeir héldu að væru samkynhneigðir eða barnaníðingar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.