ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Strangtrúaður þjófur

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:33 › 5. mars 2009
Búddalíkneski. Eitt líkneski dugði ekki hinum trúrækna þjófi.

Búddalíkneski. Eitt líkneski dugði ekki hinum trúrækna þjófi.

Menn leggja ýmislegt á sig fyrir trúna. Lögreglan í Kyoto, höfuðborg Japans til forna, fann á heimili manns þar í borg fjöldann allan af Búddalíkneskjum. Tjáði maðurinn að hann hefði stolið þeim svo hann gæti beðið til þeirra. Alls fann lögreglan tuttugu og eitt líkneski af Búdda í kjölfar handtöku mannsins, en hann var upphaflega grunaður um að hafa stolið viðarlíkneski af Búdda í hofi í Kyoto.

„Ég stal því vegna trúrækni minnar,“ hafði talsmaður lögreglunnar eftir Itsuo Abe, þegar Abe var spurður út í sjötíu sentímetra líkneski frá fyrri hluta sautjándu aldar, sem tilheyrði Kenninji, Zen-hofi sem stofnað var 1202. „Ég kann vel að meta Búddalíkneski. Ég fór með það heim og bað til þess daglega,“ sagði Abe.
Að sögn talsmanns lögreglunnar var eitt herbergi á heimili Abes nánast full af styttum, og var eplum og banönum komið fyrir fyrir framan þær sem fórnargjöfum.

Undanfarna mánuði hafa nokkur hof í Kyoto orðið fyrir því að Búddalíkneski hafa horfið. Einn starfsmaður Kenninji, Zenyu Asano, var himinlifandi yfir uppgötvun lögreglunnar. „Okkur hafði liðið eins og sögu fjögur hundruð ára hefði verið stolið. Við trúðum að við fengjum þetta aftur. Við erum allir mjög spenntir,“ sagði Asano.

Kenninji hefur nú fengið öryggisverði til að fylgjast með eign sinni. Einnig var öryggismyndavélum fjölgað um helming og innrauðum nemum komið fyrir, sagði Soseki Unrini, munkur í Kenninji-hofinu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.