ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.6° 6m/s SSW

Riddarinn Kennedy

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:31 › 5. mars 2009

Ted Kennedy, einn áhrifamesti meðlimur Kennedy-ættarveldisins sem trónaði yfir bandarískum stjórnmálum á síðustu áratugum tuttugustu aldar, verður þess heiðurs aðnjótandi að verða aðlaður.

Ted Kennedy, öldungadeildarþingmaður fyrir Massachusetts í hátt í fimmtíu ár, mun taka við viðurkenningunni fyrir þátt sinn í samskiptum Bandaríkjanna og Bretlands og friðarferlinu á Norður-Írlandi.

Kennedy mun þó ekki heimilt að nota titilinn „sir“ því einungis breskir þegnar mega það. Hann má hins vegar setja skammstöfunina KBE fyrir aftan nafn sitt, en hún stendur fyrir Knight of the British Empire, riddari breska heimsveldisins.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.