ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW

Lögmenn fengu 8 milljónir vegna kreppunnar

18:15 › 5. mars 2009
Utanríkisráðuneytið greiddi rúmar 20 milljónir vegna aðkeyptar þjónustu í tíð Ingibjargar Sólrúnar frá síðustu kosningum.

Utanríkisráðuneytið greiddi rúmar 20 milljónir vegna aðkeyptar þjónustu í tíð Ingibjargar Sólrúnar frá síðustu kosningum. DV/Rakel Ósk

Utanríkisráðuneytið greiddi rúmar 20 milljónir vegna ráðgjafa- og verktakakostnaðar í tíð síðustu ríkisstjórnar. Þyngst vegur þar tæplega 8 milljón króna kostnaður vegna lögfræðiráðgjafar í tengslum við efnahagskreppuna.
Þetta kemur fram í svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn DV.

Sundurliðaður kostnaður er sem hér segir:

Eiríkur Tómasson, lögfræðiráðgjöf vegna frumvarps 40.000 krónur
Lilja Ólafsdóttir, ráðgjöf vegna fríverslunarsamninga 1.584.000 krónur
Regína Bjarnadóttir, sérfræðiúttekt vegna Sameinuðu Þjóðanna 140.000 krónur
Guðni T. Jóhannsson, yfirlestur og mat 120.000 krónur
Ragnhildur Helgadóttir, lögfræðiráðgjöf 63.000 krónur
Vog, árangursstjórnunarverkefni 1.250.000 krónur
Nordic Business Development, ráðgjöf fyrir viðskiptasvið 1.036.000 krónur
LM lögmenn, lögfræðiráðgjöf um upplýsingamál 562.500 krónur
Alþjóðaver, ráðgjöf og verkefnaþróun vegna öryggisframboðs 2.450.000 krónur
Landslög, lögmannsþjónusta vegna starfsmannamála 725.151 krónur
Skynsemi, ráðgjöf vegna lagafrumvarps 60.000 krónur
Mörkin Lögmannsstofa, vinna vegna starfsmannamála 799.750 krónur
GSP samskipti, ráðgjöf á sviði almannatengsla 150.000 krónur
PricewaterhouseCoopers, úttekt á afmörkuðum þáttum flugverndar 2.915.220 krónur


Þar að auki voru greiddir tveir reikningar í febrúar, sem stofnað var til í tíð fyrri ríkisstjórnar

Sir Michael Wood, breskur lögmaður, lögfræðiráðgjöf vegna mögulegrar málshöfðunar Advokatfirmaet Schjodt 291.730 krónur
Lögfræðiráðgjöf í tengslum við efnahagskreppuna 7.998.428 krónur

Samtals 20.185.779 krónur



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.