Lítil verðlækkun þrátt fyrir kreppu

Greining Íslandsbanka spáir frekari verðlækkunum á íbúðarhúsnæðum.

Greining Íslandsbanka spáir frekari verðlækkunum á íbúðarhúsnæðum. Mynd DV.

Fimmtudagur 5. mars 2009 kl 21:03

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

Nafnverð íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu hefur lækkað um tæplega 4 prósent frá hruni bankanna og um tæplega 6 prósent á síðastliðnum tólf mánuðum. Lækkunin er lítil miðað við það að hagkerfið er að ganga í gegnum eina erfiðustu kreppu sem það hefur tekist á við samkvæmt vef Greiningar Íslandsbanka.

Þróunin á landsbyggðinni hefur verið ámóta þróuninni á höfuðborgarsvæðinu. Ástæða þess að nafnverð hefur ekki lækkað meira en raun ber vitni liggur meðal annars í því að íbúðamarkaðurinn er mjög óvirkur um þessar mundir. Framboð á íbúðarhúsnæði er mikið en eftirspurnin hefur hinsvegar hrunið.
Kaupmáttarþróun, atvinnuástandið, væntingar um húsnæðisverðsbreytingar, skortur á lánsfé ásamt fleiri þáttum ráða þar för. 145 kaupsamningum var þinglýst í síðasta mánuði samanborið við 426 á sama tímabili árið 2008.

Samkvæmt vef Íslandsbanka hafa fjármálastofnanir ekki gengið fram með sama hætti og víða erlendis gangvart heimilunum í innheimtu húsnæðislána. Þvingaðar sölur hafa verið fátíðari hér en til dæmis í Bandaríkjunum undanfarið en þar hafa slíkar sölur verið ein af ástæðum þess hvað verð íbúðarhúsnæðis hefur lækkað skarpt.

Greining Íslandsbanka telur að frekari verðlækkun sé í farvatninu. Ástæðan er sögð sú að eftir þá verðbólu sem verið hefur á íbúðamarkaði undanfarin ár er raunverð íbúðarhúsnæðis umtalsvert hærra en langtímameðaltal, eða um 40 prósent fyrir því sem verið hefur undanfarna áratugi. Ljóst er að svo hátt íbúðaverð er ekki í takt við þá stöðu sem hagkerfið er komið í.


Senda á Facebook



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

Sunnudagur 15. mars 2009 kl 23:36

Dagforeldrar misnotuðu börn

Sunnudagur 15. mars 2009 kl 22:37

Fritzl boðið lúxusfangelsi – Mannæta hótar að éta hann

Sunnudagur 15. mars 2009 kl 21:56

Einn dópaður á Selfossi

Sunnudagur 15. mars 2009 kl 21:08

Mörður: Stóð mig sjálfsagt ekki nógu vel

Sunnudagur 15. mars 2009 kl 21:04

Skaut nágrannann - hélt hann væri api

Sunnudagur 15. mars 2009 kl 20:20

Ósáttur við RÚV og segir Jón Baldvin pappírstígrisdýr

Sunnudagur 15. mars 2009 kl 19:34

Magnús Þór: Líður svolítið eins og Davíð

Sunnudagur 15. mars 2009 kl 19:34

Birkir sigraði Höskuld

Sunnudagur 15. mars 2009 kl 19:27

Dr. Gunni masterar nýja plötu

Sunnudagur 15. mars 2009 kl 19:09

Pyntaðir, drepnir og hent í eyðimörkina

Sunnudagur 15. mars 2009 kl 18:49

Prófkjör Samfylkingar í Kraganum sagt í uppnámi

Sunnudagur 15. mars 2009 kl 17:55

Styttist í tölur frá Framsókn

Sunnudagur 15. mars 2009 kl 17:44

Trylltar fyrirsætur í New York - myndband

Sunnudagur 15. mars 2009 kl 17:00

Meiri hárvöxtur - kröftugri fullnæging

Sunnudagur 15. mars 2009 kl 16:52

Lokatölur: Kristján í fyrsta, Tryggvi í öðru

Sunnudagur 15. mars 2009 kl 16:47

Myrti fjóra og svipti sig lífi

Sunnudagur 15. mars 2009 kl 16:32

Vegurinn um Dalsmynni opnaður aftur

Sunnudagur 15. mars 2009 kl 16:07

Tryggvi Þór í öðru sæti

Sunnudagur 15. mars 2009 kl 15:56

Var ekki orðin stressuð

Sunnudagur 15. mars 2009 kl 15:13

Drap son sinn í þurrkara