ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW

Kvótakerfið kostnaðarsamt mannréttindabrot

18:50 › 5. mars 2009
Einar K. Guðfinnsson lofaði að bregðast við úrskurði Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Kvótakerfið er þó enn óbreytt.

Einar K. Guðfinnsson lofaði að bregðast við úrskurði Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Kvótakerfið er þó enn óbreytt. DV/Karl Petterson

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið greiddi lögfræðingum 21,6 milljón króna í tíð síðustu ríkisstjórnar. Lögfræðingarnir sinntu meðal annars undirbúningi svara til mannréttindadómstólsins í Strasbourg og Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.

Mannréttindanefndin komst að þeirri niðurstöðu að kvótakerfið væri brot á mannréttindum og lofaði Einar K. Guðfinsson að bregðast við því. Kvótakerfið er hins vegar enn óbreytt.

Sundurliðaður kostnaður er sem hér segir:

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti, aðalskrifstofa og ýmis verkefni

Lögfræðingar
Undirbúningur svara til Mannréttindadómstólsins í Strassborg og Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Vinna við frumvörp um stjórn fiskveiða, búfjárlög, matvælalög og önnur verkefni
Kr. 21.618.699

Viðskipta- og hagfræðingar, lögg. endurskoðendur, tölfræðingar.
Vinna við útreikninga vegna verðlagsmála landbúnaðarins, vigtunar sjávarafla og önnur smærri verkefni
Kr. 2.196.778

Þýðendur
Þýðingar á lögum, frumvörpum, ræðum og ýmsum skýrslum
Kr. 1.946.393

Önnur sérfræðiþjónusta
Skýrslur um fiskeldi, umsjón með fisheries.is og önnur verkefni
Kr. 2.239.508

Samtals kr. 28.001.378



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.