Kurr í Kreml
Dmitry Medvedev forseti og Vladimír Pútín forsætisráðherra. Margir Rússar telja að forsætisráðherrann fari með völdin í landinu. Mynd AFP.
Eftir eins árs setu Dmitrys Medvedev í embætti forseta Rússlands telja stjórnmálaskýrendur að hann sé jafnvel kominn á bragðið. Þó ekki hafi skorist, svo nokkru nemi, í odda með honum og forvera hans, Vladimír Pútín, er nú svo komið að blikur virðast vera á lofti í sambandi þeirra tveggja.
Forseti Rússlands, Dmitry Medvedev, er búinn að vera eitt ár í embætti, en kannanir sýna að flestir Rússar líta þannig á að forsætisráðherra landsins, Vladimír Pútín, sé sá sem heldur um stjórnartaumana. Þeir voru til sem bundu vonir við breytta tíma þegar Medevedev var kynntur til sögunnar sem arftaki Pútíns í embættið. Medvedev er lögfræðingur og hefur engin tengsl við kommúnistaflokkinn eða leyniþjónustuna KGB, forvera FSB, svo vitað sé. Þeir sem ólu á slíkum væntingum hafa orðið fyrir vonbrigðum.
Til marks um hve óvarlegt var að vænta breytinga má benda á ný réttarhöld yfir Mikhail Khodorkovsky, fyrrverandi olíuiðnjöfri hjá olíufélaginu Yukos, sem hófust í gær í Moskvu. Hann var dæmdur í átta ára fangelsi árið 2005 vegna svindls og undanskots á sköttum í réttarhöldum sem margir töldu hefnd af hálfu Pútíns fyrir að hafa stutt andstæðinga hans í kosningabaráttunni um forsetaembættið á þeim tíma.
Sjálfstæðari forseti?
Hveitibrauðsdagar Dmitrys Medvedev í embætti forseta voru fáir, því aðeins mánuðum eftir að hann tók við embættinu hófust stutt en hörð átök Rússa og nágrannaríkisins Georgíu. Síðan þá hafa samskipti ríkjanna verið viðkvæm. Medvedev var valinn af forvera sínum Pútín og hét því að fylgja þeirri stefnu sem Pútín hafði stungið út á tíma mikils hagvaxtar í Rússlandi.
En nú er öldin önnur og herrarnir í Kreml standa frammi fyrir lægð sem óhjákvæmilega hefur áhrif á samfélagslegan stöðugleika. Dmitry Medvedev hefur ýjað að sjálfstæðari stefnumótun, til dæmis með því að hitta ritstjóra Novaya Gazeta, dagblaðs sem ekki er hlynnt ríkisstjórninni, en lögfræðingur blaðsins og einn blaðamaður voru ráðnir af dögum fyrir ekki löngu síðan.
En kannski skortir eitthvað á að almenningur láti sannfærast og dagblaðið Nezavisimaya Gazeta minntist árs afmælis Medvedevs í forsetastóli með forsíðuritstjórnargrein undir fyrirsögninni: „Veikur forseti, magnminni forsætisráðherra og aukinn órói í rússnesku samfélagi.“
Skerst í odda
Ekki er loku fyrir það skotið að brestir eigi eftir að koma í samband Pútíns og Medvedevs þegar fram í sækir, það er enda eðlilegt að Pútín verði gagnrýndur fyrir máttlausar tilraunir til að draga úr áhrifum efnahagslægðarinnar, þar sem almennt er talið að hann hafi töglin og hagldirnar.
Nú er svo komið að áhrifa efnahagslægðarinnar er farið að gæta í Kreml þar sem barátta tveggja fylkinga virðist grafa undan yfirvaldi Vladimírs Pútín og varpa skugga á samband hans við skjólstæðing hans, Dmitry Medvedev.
Þess eru teikn á lofti að öflugir hópar, annars vegar úr röðum hers landsins og hins vegar úr öryggisþjónustunni, sem hingað til hafa slegið skjaldborg um Pútín, horfi til stuðningsmanna Medvedevs í baráttu þessara tveggja hópa um stjórn á fjármunum þjóðarinnar sem fara þverrandi.
Hrunið á verðbréfamarkaði Rússlands nemur um 80 prósentum frá því toppnum var náð og tíu auðugustu menn landsins töpuðu sem nemur um 150 milljörðum Bandaríkjadala á síðasta ári.
Medvedev kominn á bragðið
Stjórnmálaskýrendur beina nú augum sínum í auknum mæli til framtíðar Dmitrys Medvedev í embætti forseta. Að mati sumra kann hann að sitja í embætti í eitt og hálft ár til viðbótar, en síðan víkja sæti fyrir Vladimír Pútín, eins og lagt var upp með.
Aðrir eru þeirrar skoðunar að Medvedev sé kominn á bragðið sem hugsanlega verður til þess að hann brjótist undan væng Pútíns.
Vel kann að vera að yfirlýst mikilvægasta verkefni hans þegar hann tók við forsetaembættinu, „frekari þróun borgaralegs og efnahagslegs frelsis“, hafi hljómað sem dæmigerð klisja á sínum tíma. Þó voru þeir til sem sáu í honum von um nýja stjórnarhætti og frjálslyndari en forveri hans hafði tíðkað.
Enn sem komið er virðast eingöngu vera sjáanleg veik merki sjálfstæðis í stjórnarháttum hjá Medvedev.
Pútín í eldlínunni
Dmitry Oreshkin, leiðandi stjórnmálagreinir, er ómyrkur í máli um stöðu mála í Kreml. „Pútín var vanur að standa yfir tveimur helstu klíkunum – „siloviki“ [her og öryggislögregla] og rökhyggjuhagfræðingum og miðla málum. Núna hefur hann verið dreginn inn í slaginn og er í eldlínunni. Að sögn siloviki er hann veikburða maður, ófær um að ná fram vilja sínum og sýna hagfræðingunum hver þeirra staður er, á sama tíma og hagfræðingarnir flykkjast um Medvedev,“ sagði Oreshkin í viðtali við breska dagblaðið The Guardian.
Þó fæstir velkist í vafa um hver leiði rússnesku þjóðina hefur verið eftir því tekið að ýmislegt bendir til þess að Medvedev hyggist jafnvel reiðubúinn til að hnykla vöðvana. Fyrir skömmu síðan lét Medvedev þau orð falla á fundi með hagfræðingum ríkisstjórnarinnar að viðbrögð ríkisstjórnarinnar undir forystu Pútíns væru „óásættanlega hæg“ og að í stað aðgerða í átt að lofuðum endurbótum hefði aðeins verið „talað og talað“.
Hallar á Medvedev
Þrátt fyrir að Dmitry Medvedev virðist vera að vakna til lífsins og láti meira að sér kveða er það mat stjórnmálaskýrenda að hann eigi langt í land með að ná þeirri stöðu sem Pútín hefur gagnvart þjóðinni og því baklandi sem Pútín kann þrátt fyrir allt að búa að hjá her og öryggisþjónustu.
Dmitry Medvedev býr ekki að nokkrum tengslum við lögreglu landsins og glímir við lykilpersónur innan siloviki, til dæmis aðstoðarforsætisráðherrann Igor Sechin, sem reiða sig á Pútín til að viðhalda áhrifum sínum.
Að auki státar Medvedev ekki af þeirri líkamlegu útgeislun sem Pútín baðar sig í. Pútín hefur komið sér upp orðspori hins sanna karlmanns sem flýgur þotum, fellir mann og annan í júdó og fer til veiða hálfnakinn.
Til að ítreka enn frekar þá yfirburði sem Pútín hefur þá töldu aðeins tólf prósent aðspurðra í nýlegri skoðanakönnun að Medvedev héldi um stjórnartaumana. Þrjátíu og fjögur prósent töldu að Pútín yrði áfram helsti stjórnmálamaður landsins. Um helmingur aðspurðra var þeirrar skoðunar að Dmitry Medvedev og Vladimír Pútín deildu völdum jafnt.
kolbeinn@dv.is
Sunnudagur 15. mars 2009 kl 23:36
Dagforeldrar misnotuðu börn
Sunnudagur 15. mars 2009 kl 22:37
Fritzl boðið lúxusfangelsi – Mannæta hótar að éta hann
Sunnudagur 15. mars 2009 kl 21:56
Einn dópaður á Selfossi
Sunnudagur 15. mars 2009 kl 21:08
Mörður: Stóð mig sjálfsagt ekki nógu vel
Sunnudagur 15. mars 2009 kl 21:04
Skaut nágrannann - hélt hann væri api
Sunnudagur 15. mars 2009 kl 20:20
Ósáttur við RÚV og segir Jón Baldvin pappírstígrisdýr
Sunnudagur 15. mars 2009 kl 19:34
Magnús Þór: Líður svolítið eins og Davíð
Sunnudagur 15. mars 2009 kl 19:34
Birkir sigraði Höskuld
Sunnudagur 15. mars 2009 kl 19:27
Dr. Gunni masterar nýja plötu
Sunnudagur 15. mars 2009 kl 19:09
Pyntaðir, drepnir og hent í eyðimörkina
Sunnudagur 15. mars 2009 kl 18:49
Prófkjör Samfylkingar í Kraganum sagt í uppnámi
Sunnudagur 15. mars 2009 kl 17:55
Styttist í tölur frá Framsókn
Sunnudagur 15. mars 2009 kl 17:44
Trylltar fyrirsætur í New York - myndband
Sunnudagur 15. mars 2009 kl 17:00
Meiri hárvöxtur - kröftugri fullnæging
Sunnudagur 15. mars 2009 kl 16:52
Lokatölur: Kristján í fyrsta, Tryggvi í öðru
Sunnudagur 15. mars 2009 kl 16:47
Myrti fjóra og svipti sig lífi
Sunnudagur 15. mars 2009 kl 16:32
Vegurinn um Dalsmynni opnaður aftur
Sunnudagur 15. mars 2009 kl 16:07
Tryggvi Þór í öðru sæti
Sunnudagur 15. mars 2009 kl 15:56
Var ekki orðin stressuð
Sunnudagur 15. mars 2009 kl 15:13







