ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Klámleikarar eiga yfir höfði sér dauðadóm

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:30 › 5. mars 2009

Lögreglan í Íran hefur handtekið hóp fólks sem vann að gerð klámmyndar, en það er glæpur sem varðar dauðarefsingu samkvæmt lögum landsins. Á Fararu, vefsíðu endurbótasinna, sagði að handtökurnar hefðu átt sér stað í húsi í miðstéttarhverfi í austurhluta Teheran og voru flestir hinna handteknu konur.

Ekki fylgdi sögunni hve margir leikarar voru handteknir, en sagt var að flestir hefðu verið „fallegar ungar konur“.Þrátt fyrir að klám hafi þrifist á neðanjarðarmörkuðum er sjaldgæft að lögreglan veki á því athygli með áberandi handtökum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.