Maðurinn vildi ekki klæða sig úr fötunum - þvert á vilja fjögurra kvenna á evuklæðunum. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint.
Lögreglan í Port Douglas í Queensland í Ástralíu fékk heldur óvenjulegt útkall á dögunum. Það var frá Tony Fox, skipuleggjanda kynsvalls á nektarnýlendunni White Cockatoo, en töluverð læti brutust út þegar karlmaður, sem vildi taka þátt í ævintýrinu, neitaði að klæða sig úr fötunum.
Maðurinn hafði mætt á staðinn ásamt eiginkonu sinni en þegar fjórar naktar konur kröfðust þess að hann klæddi sig líka úr fötunum brást hann hinn versti við og vildi vera fullklæddur. Það hugnaðist konunum ekki og út brutust mikil rifrildi sem endaði með því að Tony hringdi á lögregluna.
Eftir nokkuð japl, jaml og fuður tókst lögreglunni að fá manninn til að yfirgefa staðinn. „Þeim leið illa við að hafa hann þarna fullklæddan. Ég bað hann um að sýna mannasiði og klæða sig úr fötunum líka. Hann hótaði síðan að lemja mig. Eftir nokkuð stapp þá vísaði ég honum burt og lögreglan kom síðan á staðinn,“ segir Fox.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu