ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

„Íslendingar eru myndarlegir“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:42 › 5. mars 2009
Alheimsfegurðardrottningin Unnur Birna er sannarlega myndarleg.

Alheimsfegurðardrottningin Unnur Birna er sannarlega myndarleg. Mynd DV

Fréttavefurinn The Business Insider hefur tekið saman sex ástæður til að flytja til Íslands. Að sjálfsögðu er þar tekið fram að Íslendingar eru myndarlegir, auk þess sem landið er sagt friðsælt og að alheimskreppan sé löngu skollin á á Íslandi.

Hér eftir fer íslensk þýðing á upptalningu The Business Insider:

Þeir eru þegar farnir á hausinn. Gjaldmiðillinn þeirra er þegar verðlaus, sem þýðir að þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því koma gjaldþrota til landsins. Í Bandaríkjunum, býrðu við þann ótta að Kínverjar muni vakna, hætta að kaupa bandarískar skuldir, og eina lausnin verði að prenta skuldir. Halló Weimar! Þetta er kannski langsótt, en gæti gerst. Af hverju að lifa í óttanum?

Samspil stjórnmála og staðsetningar landsins er ómerkilegt. Hver ætlar að sprengja Ísland ef önnur heimsstyrjöld brýst út?

Þeir eiga auðlindir. Þegar allt kemur til alls, hvað þarftu meira en jarðhita og fisk? Allt í lagi, þú þarft nettengingu líka, en þeir eru með svoleiðis. Fiskur, jarðvarmi og internet er allt sem þú þarft.

Það er friðsælt land. Það voru einhverjar “óeirðir“ eftir að efnahagurinn hrindi, en voru að mestu leyti ofbeldislaus. Þar ríkir mikil samfélagsleg samloðnun, sem þýðir að þegar í harðbakkann slær, er líklega engin þörf á að draga upp byssuna.

. Fáir bældir, reiðir innflytjendur. . Ólíkt mörgum öðrum stöðum í Evrópu, þar sem þú hefur marga atvinnulausa og reiða innflytjendur, hefur Ísland ekki þetta mikilvæga samfélagslega úrlausnarefni upp á borðinu.
Og bónusinn.

Íslendingar eru myndarlegir



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.