Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að gatnamótum Lönguhlíðar og Mávahlíðar rétt fyrir klukkan tíu í kvöld. Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu kom til deilna tveggja hópa ungmenna en tilkynnt var um að hnífar og önnur barefli væru á lofti.
Að sögn varðstjóra komu tveir ungir piltar inn í sjoppu í Hlíðahverfinu og báðu um að hringt yrði á lögreglu. Lögreglan er enn á vettvangi en einn hnífur fannst á heimili sem vísað hafði verið á. Enginn hefur þó verið handtekinn. Ekki er vitað til þess að nokkur hafi slasast. Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um málið á þessari stundu.





Páll Óskar: „Ísland á að draga sig útúr Eurovision“
Kona réðst að öryggisverði í 10-11
Á ótryggðum bíl vegna gjaldþrots án þess að vita það
Vatnskóngurinn opnar tískuskóla
„Hún var góð manneskja og góð vinkona“