„Mér finnst ekkert að því að þjóðþekkt persóna mæti á tónlistaratburð hvort sem það er ópera, djasshátíð, Party Zone eða techno.is,“ segir Helgi Már Bjarnason, aðstandandi Party Zone.
„Ég sá Ólaf þarna, hnippti aðeins í hann og spurði hann hvað hann væri að gera hér. Hann sagðist vera að skemmta sér. Ég spurði hann þá hvernig honum litist á Stephan Bodzin. Þá gaf hann mér tvo þumla upp og sagði: „Já, þetta er frábært.“ Það var gaman að sjá hann þarna,“ segir Helgi Már Bjarnason, annar af tveimur aðstandendum Party Zone. DV birti í gær myndir af Ólafi F. Magnússyni, fyrrverandi borgarstjóra, frá kvöldinu.
„Mér finnst ekkert að því að þjóðþekkt persóna mæti á tónlistaratburð hvort sem það er ópera, djasshátíð, Party Zone eða techno.is,“ segir Helgi Már. 800 manns mættu á viðburðinn en fjörið var svo mikið að það þurfti að taka rafmagnið af plötusnúðabúrinu um morguninn. Rjóminn úr íslensku rafsenunni var þarna samankominn þetta kvöld ásamt þekktasta plötusnúði Þýskalands.
Nánari umfjöllun í DV í dag.






Radcliffe fúll út í Óskarinn
Var fullur á meðan hann lék Harry Potter
Madonna mætti með hersveit
Heidi þakklát fyrir stuðninginn
Scarlett og nýi kærastinn