ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.6° 6m/s SSW

Breskum krám fækkar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:15 › 5. mars 2009

Síðan Alasdair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, hækkaði skatta á bjór í fjárlögum 2008 hafa tvö þúsund knæpur í Bretlandi lagt upp laupana og er um met að ræða í því tilliti. Með lokun knæpnanna töpuðust um 20.000 störf.

Þessar tölur voru gerðar opinberar samfara spá Oxford Economics um að 75.000 störf til viðbótar væru í hættu í drykkjarvörugeiranum. Spá Oxford Economics byggist meðal annars á áhrifum átján prósenta hækkunar vörugjalds á síðasta ári.

Rob Hayward, framkvæmdastjóri breska kráasambandsins, sagði að þessar tölur opinberuðu umfang þeirra þrenginga sem bjór- og kráageirinn stæði frammi fyrir.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.