Magnús Ægir Magnússon, fyrrverandi sparisjóðsstjóri, og Ragnar Z. Guðjónsson sparisjóðsstjóri. Fjármálaeftirlitið krefst afrita af öllum tölvupóstum beggja, auk fleiri stjórnenda Byrs.
MP banki gerði veðkall í byrjun október hjá félagi í eigu stjórnenda Byrs, og krafðist þannig tryggari veða fyrir lánum. MP bankinn tók síðan stofnfjárhluti stjórnenda í Byr upp í skuldir og flutti yfir í félag í eigu lögfræðings sem vinnur fyrir MP banka. Það félag fékk aftur 1,4 milljarða króna yfirdráttarheimild hjá Byr. Fjármálaeftirlitið rannsakar málið og krefst upplýsinga með hraði.
Fjármálaeftirlitið hefur óskað eftir afriti af öllum tölvupóstum Sighvats Sigfússonar, framkvæmdastjóra fjármálasviðs, Gunnars Árnasonar, yfirmanns áhættustýringar og útlánaeftirlits, Atla Arnar Jónssonar, framkvæmdastjóra bankaþjónustu og fyrirtækjasviðs, Auðar Örnu Eiríksdóttur útibússtjóra og sparisjóðsstjóranna Magnúsar Ægis Magnússonar, sem nú er hættur, og Ragnars Z. Guðjónssonar.
Vegna rannsóknar sinnar fer Fjármálaeftirlitið einnig fram á afrit af öllum útlánareglum Byrs og yfirlitum yfir útlánaheimildir starfsmanna sparisjóðsins. Þá vill Fjármálaeftirlitið fá upplýsingar um viðskipti Byrs sparisjóðs við Húnahorn ehf., en það er einkahlutafélag í eigu Ragnars Z. Guðjónssonar sparisjóðsstjóra og fleiri stjórnenda Byrs. FME biður í bréfinu um upplýsingar um allar fyrirgreiðslur til félagsins, þar á meðal um lánasamninga og vinnuskjöl, svo sem skjöl lánanefnar og útlánaeftirlits.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir