ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 5m/s SE

Slasaðist í árekstri

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:48 › 28. mars 2009

Ökumaður bíls var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri í dag eftir að bíll hans skall á öðrum bíl á Þingvallastræti á Akureyri. Lögreglu var tilkynnt um slysið rétt fyrir klukkan sex í kvöld. Maðurinn kvartaði undan verkjum í baki og kvið en að sögn lögreglu er talið að meiðsl mannsins séu ekki alvarleg.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.