Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
„Mér fannst þetta mjög ómakleg gagnrýni,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og formaður Endurreisnarnefndar Sjálfstæðisflokksins, um orð Davíðs Oddssonar á landsfundi flokksins í dag. Davíð sagði að skýrsla nefndarinnar væri mikil hrákasmíð og sagðist hann sjá mikið eftir þeim trjágróðri sem fór í prentun hennar.
„Allir kaflarnir í bókinni hafa ákveðna höfunda og það voru 80 manns sem komu að þessu og voru virk í vinnuhópnum við að setja þetta saman. Nöfnin eru öll í bókinni og þetta er allt saman fólkið sem hann er að gefa þessa einkunn. Þetta var feilskot hjá honum,“ sagði Vilhjálmur í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli