ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW

RÚV svíkur aðdáendur Zeitgeist

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:25 › 28. mars 2009
Einhver kergja virðist vera í forsvarsmönnum RÚV að sýna Zeitgeist Addendum samkvæmt Landpóstinum.

Einhver kergja virðist vera í forsvarsmönnum RÚV að sýna Zeitgeist Addendum samkvæmt Landpóstinum. Mynd DV

Einhver kergja virðist vera í forsvarsmönnum Ríkissjónvarpsins að sýna kvikmyndina Zeitgeist Addendum. Landpósturinn, fréttavefur fjölmiðlanema við Háskólann á Akureyri, greinir frá því að innkaupastjóri Ríkissjónvarpsins hafi lofað því að myndin yrði tekin til sýninga ef tilskilin leyfi fengjust. Þegar þau voru svo komin í hús kom annað hljóð í strokkinn.

Forsaga málsins er sú að fyrir nokkrum mánuðum var stofnaður Facebook hópur þar sem fólk gat skorað á Ríkissjónvarpið að sýna myndina. Zeitgeist Addendum fjallar í stuttu máli um um fjármálakerfið í Bandaríkjunum, hvernig peningar verða til úr engu og hvaða afleiðingar það hefur í för með sér. Einnig er fjallað um Alþjóða gjaldeyrissjóðinn og hvernig hann er notaður til að koma ríkjum í vandræði og brjóta þau niður. Myndirnar hafa verið umtalaðar en sumir telja að þær séu byggðar á samsæriskenningum frá upphafi til enda eins og fram kemur á fréttavef Landpóstsins.

Guðjón Heiðar Valgarðsson, sem gengur fyrir hópnum, talaði við innkaupastjóra RÚV um að myndin yrði tekin til sýninga. Innkaupastjórinn tók vel í hugmyndina og sagði hana geta gengið. Hinsvegar væru ekki til peningar fyrir myndinni í því árferði sem þá var. Guðjón og hópurinn aflaði tilskilinna leyfa fyrir sýningu myndarinnar en þegar hann hafði aftur samband við innkaupastjórann var komið annað hljóð í strokkinn.

„Innkaupastjóri Ríkisútvarpsins sagði Guðjóni að pappírarnir sem hann væri með í höndunum gætu verið komnir frá hverjum sem er og væru því ekki nægilegir til að þeir gætu sýnt myndina, Guðjón segir ástæðuna fyrir því að þeir vilji ekki sýna hana þó vera augljósa og hún hafi ekkert með réttindi að gera,“ segir á vef Landpóstins.

„Þá sagði ég honum að mjög líklega myndum við fá að sýna myndina ókeypis. Við náðum því að hafa samband við Peter Joseph, leikstjóra og framleiðanda myndarinnar, en margir úr hópnum hjálpuðu til við að ná því og hann sendi bréf með leyfi til að sýna myndina ókeypis. Svo sendu þeir okkur digibeta pal útgáfu af myndinni sem var sú útgáfa sem þeir á Ríkisútvarpinu báðu um,” segir Guðjón. Þrátt fyrir þetta hefur RÚV ekki enn viljað verða við beiðni Guðjóns.

Umfjöllun Landpóstsins.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.