Ræninginn ungi þarf væntanlega að dúsa bak við lás og slá eftir þessa misheppnuðu tilraun sína. Mynd Photos
Lögreglumaður sem kominn er á eftirlaun segir að hann hafi verið rændur trúlega af „heimskasta glæpamanni Pensylvaníuríkis, þó víðar væri leitað“. Maðurinn sem heitir John Comparetto var staddur á ráðstefnu þar sem yfir 300 fíkniefnalögreglumenn voru saman komnir.
Comparetto ákvað að bregða sér afsíðis til að fara á snyrtinguna. Þegar hann ætlaði að snúa aftur í ráðstefnusalinn mætti honum vopnaður maður sem krafðist þess að fá afhent veski. Comparetto hlýddi manninum og lét hann hafa veskið en í því voru nokkrir seðlar.
Ræninginn forðaði sér í burtu en það tók Comparetto og nokkra félaga hans úr lögreglunni sem voru í selingarfjarlægð aðeins nokkrar mínútur að hlaupa manninn uppi. Ræninginn, sem er 19 ára gamall, var handsamaður en hann á yfir höfði sér ákæru fyrir ránið.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung