Egill Helgason virðist ekki hafa verið hrifinn af ræðu Davíðs Oddssonar á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í dag. Mynd DV
Sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason gerir ræðu Davíðs Oddssonar að umtali á bloggsíðu sinni á Eyjunni. Þar segir Egill að mikið hafi verið um sjálfsgagnrýni og hláturinn í salnum hafi verið taugaveiklaður.
„Mikið um sjálfsvorkunn og sjálfsréttlætingu. Lítið um sjálfsgagnrýni.Taugaveiklaður hlátur í salnum,“ segir Egill.
„En þetta er greinilega allt Samfylkingunni – nei, Samspillingunni – að kenna,“ segir Egill og vitnar í orð Davíðs sem nefndi Samfylkinguna Samspillinguna í ræðu sinni.
Ræðan virðist hafa lagst misvel í lesendur bloggsíðu Egils. Einn sem gerir athugsemd við færslu Egils spyr hvort fólk hafi verið að hlæja að honum eða með honum. Einn vill senda Davíð í útleggð til Viðeyjar og enn annar segir að ræða Davíðs hafi verið góð.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna