ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Mjög erfiðar aðstæður á Skessuhorni

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:06 › 28. mars 2009
Fólkið greip til þess ráðs að grafa sig í fönn.

Fólkið greip til þess ráðs að grafa sig í fönn. Mynd: Landsbjörg

„Þeir eru að mjakast niður og það er búist við að konan komist í þyrlu klukkan 21,“ segir Ólöf Snæhólm, upplýsingafulltrúi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Um 120 manns hafa í allan dag unnið að því að koma hópi göngumanna sem festist á toppi Skessuhorns til byggða. Hópurinn kallaði eftir aðstoð eftir að kona í hópnum slasaðist.

Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd voru aðstæður á Skessuhorni mjög slæmar. Fólkinu er kalt og greip hópurinn til þess ráðs að grafa sig í fönn. Veður er afleitt á svæðinu, hvasst er auk þess sem töluverð snjóflóðahætta er. Ferð björgunarsveitafólksins hefur gengið hægt enda aðstæður erfiðar.
Ekki liggur fyrir hversu mikið konan er slösuð en þyrla Landhelgisgæslunnar bíður hennar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.