Um hundrað björgunarsveitamenn af Vesturlandi og höfuðborgarsvæðinu vinna nú í því að ná 12 manna gönguhópi niður af Skesskuhorni. Hópurinn bað um aðstoð um klukkan 14:00 í dag þegar einn meðlimurinn féll og slasaðist.
Veður er afleitt á svæðinu, hvasst auk þess sem snjóflóðahætta er töluverð. Ferð björgunarsveitafólksins sækist hægt enda aðstæður erfiðar. Allar tiltækar leiðir eru notaðar til að komast að fólkinu; snjóbílar, fjórhjól og vélsleðar. Ekki er þó talið að hægt sé að komast síðasta spölinn að hópnum nema gangandi.
Þyrla LHG hefur beðið fyrir neðan fjallið á þjóðveginum en veður hamlar för hennar að göngufólkinu.
Eins og fyrr segir er ein kona slösuð og aðrir í hópnum eru kaldir og þrekaðir og þurfa hjálp. Hópurinn hefur grafið sig í fönn og hefur því eitthvað skjól.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna