ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Miðlar fá styrk frá hinu opinbera

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:21 › 28. mars 2009
Paul og Debrah fá 770 þúsund krónur. Þau ætla að hefja námskeið í að aðstoða fólk við að ná sambandi við framliðna.

Paul og Debrah fá 770 þúsund krónur. Þau ætla að hefja námskeið í að aðstoða fólk við að ná sambandi við framliðna. Mynd Photos

Tveir breskir miðlar, Paul og Deborah Rees, hafa fengið styrk frá stjórnvöldum til að kenna fólki að ná sambandi við framliðna. Styrkurinn nemur 4.500 pundum, eða 770 þúsund krónum. Þetta er í fyrsta skipti sem bresk stjórnvöld styrkja starfsemi miðla með þessum hætti.

Styrkurinn sem um ræðir tengist atvinnuverkefni sem stjórnvöld fóru nýlega af stað með en þá gátu einstaklingar farið fram á styrkveitingu vegna atvinnu sinnar. Hinsvegar eru ekki allir á eitt sáttir með að peningar skattgreiðenda séu notaðir með þessum hætti. Þannig segir þingmaðurinn Tory Welsh að það sé algjör hneisa að peningar skattgreiðenda séu notaðir með þessum hætti og vill hann að opinber rannsókn fari fram á styrkveitingunni.

Paul og Deborah láta þetta hinsvegar ekkert á sig fá og segja að peningarnir verði notaðir skynsamlega. „Fólk sem hefur misst foreldra sína eða börn á skilið virðingu í sorg sinni. Okkar starf er að auðvelda fólki sorgina,“ segir Paul.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.