ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.4° 10m/s S

Lag til að breyta kvótakerfinu

Jóhann Hauksson johannh@dv.is
19:25 › 28. mars 2009
Össur Skarphéðinsson: Össur telur lag að breyta kvótakerfinu nú, en það hafi ekki verið hægt í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn.

Össur Skarphéðinsson: Össur telur lag að breyta kvótakerfinu nú, en það hafi ekki verið hægt í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn.

Össur Skarphéðinsson, utanríkis- og iðnaðarráðherra, segir að ekki hafi verið hægt að breyta kvótakerfinu í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn. Í bloggi sínu gefur hann til kynna nú sé að skapast aðstæður til breytinga á því.

"Kvótakerfið var upphafið að græðgisvæðingunni sem steypti hér öllu á hvolf. Ætli menn að snúa samfélaginu á rétta braut verður að vinda ofan af ranglæti þess. Það var ekki hægt í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn, en leiðin ætti að verða greiðari til þess í vinstri stjórn. Ég er þeirrar skoðunar að landsfundur Samfylkingarinnar þurfi að taka skýrt til máls í því efni."

Össur vísaði í þessu sambandi til orða sem Dagúr B. Eggertsson nýkjörinn formaður Samfylkingarinnar lét falla í framboðsræðu á landsfundi flokksins. "Orð Dags um kvótakerfið vöktu athygli mína á því að á þessum landsfundi er meira talað um nauðsyn róttækra breytinga á stjórnkerfi fiskveiða en um langt skeið. Úr fjarlægð sá ég breitt bros á andliti Jóhanns Ársælssonar. Í þessu gamla baráttumáli höfum við jafnan snúið bökum saman, stundum í sókn, oftar í vörn, og Jóhann hefur verið hugsuður okkar, sem höfum fylkt liði fyrir breytingum á kvótakerfinu. Brosið merkir líklega að Jóhanni líkar vel hvernig málið er að þokast."



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.