Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Hópur námsmanna frá Delaware í Bandaríkjunum kom sextugri konu að nafni Anne Griffith til bjargar á síðustu stundu þegar hún festi bíl sinn á lestarteinum í fyrrakvöld. Konan var að keyra þegar hún beygði óvart inn á teinana. Ekki vildi betur til en svo að bíllinn sat pikkfastur eftir.
Námsennirnir, sem voru fjórir talsins, reyndu hvað þeir gátu að losa bílinn en án árangurs. Þegar viðvörunarbjöllur við gatnamótin fóru að hringja og járnbrautarlest kom aðvífandi aðstoðuðu þeir konuna við að komast úr bílnum. Það mátti ekki seinna vera því lestin skall á bílnum skömmu síðar og gjöreyðilagðist hún.
Að sögn lögreglu slasaðist enginn í árekstrinum en umferð var stöðvuð í þrjár klukkustundir efti atvikið. Myndband af atvikinu má sjá hér að neðan:





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung