ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

Kastaði eldsprengju í sinn eigin bíl - óvart

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:31 › 28. mars 2009
Maðurinn kastaði sprengjunni í sinn eigin bíl - alveg óvart. Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Maðurinn kastaði sprengjunni í sinn eigin bíl - alveg óvart. Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Karlmaður frá Bithlo í Flórída á varla eftir að geta horft í augu nágranna síns næstu árin. Maðurinn hafði lent í rifrildum við nágranna sinn sem endaði með því að sá fyrrnefndi ákvað að fylla flösku af bensíni og kasta henni , svokölluðum Molotov-kokteil, í bíl hans.

Töluverður vindur var þetta kvöld og vildi ekki betur til en svo að vindurinn feykti kokteilnum yfir á hans eigin lóð og kveikti hann í sínum eigin bíl og hjólhýsi. Maðurinn var handtekinn í kjölfarið og hann yfir höfði sér kærur, meðal annars fyrir íkveikju.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.