Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlankastjóri, fór mikinn á landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Davíð hóf ræðu sína á því að líkja sjálfum sér við Jésúm Krist á krossinum. Þótt Geir H. Haarde hafi beðið sjálfstæðismenn afsökunar á einkavæðingu bankanna var Davið ekkert á þeim buxunum. Hann sagðist sjálfur hafa viljað dreifða eignaraðild að bönkunum en Samfylking og fleiri hafi verið á annarri skoðun. Davíð mismælti sig og kallaði Samfylkingu Samspillingu. Þá sagði hann Jóhönnu Sigurðardóttur hafa verið eins og álf út úr hól enda litin hún út eins og álfur.
Davíð Oddsson hjó til Vilhjálms Egilssonar og sagði skýrslu endurreisnarnefndar vera hrákarsmíð. Enda væri Vilhjálmur handbendi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og annarra útrásarvíkinga. Landsfundarfulltrúar kætast mjög undir ræðu Davíðs og augljóst er að hann á mikinn hljómgrunn á meðal flokksmanna.
,,Jóhanna lítur út eins og álfur¨
Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli