Björgunarsveitum hefur tekist að koma hópi fólks sem lenti í sjálfheldu á Skessuhorni í dag niður af fjallinu. Enn er þó verið að flytja konuna sem slasaðist niður í snjóbíl. Að sögn Ólafar Snæhólm, upplýsingafulltrúa Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, er vonast til þess að konan verði komin niður um ellefu leytið.
Gönguhópurinn kom niður af fjallinu klukkan 21.10 en um er að ræða ellefu manns. Líðan þeirra er sögð ágæt. Um 120 björgunarsveitarmenn hafa unnið að því frá klukkan 14 að koma hópnum niður. Hópurinn bað um aðstoð þegar konan, sem var í hópnum, féll og slasaðist. Veður var afleitt á svæðinu, mjög hvasst auk þess sem snjóflóðahætta var töluverð.
Þyrla Landhelgisgæslunnar bíður konunnar en í snjóbílnum sem flytur konuna er læknir. Talið er að ástand konunnar sé stöðugt en ekki er vitað nánar um meiðsl hennar.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir
Gat ekki hróflað við Davíð
Nýr meirihluti myndaður í Kópavogi
Jón Gnarr setur Vetrarhátíð
Harmleikur í Hafnarfirði: Búið að yfirheyra hinn grunaða