„Við höfum búið við stjórn Vinstri grænna og Samfylkingar síðustu vikurnar. Vinnubrögð hennar hafa verið fálkennd og engu skilað. Allt hefur snúast um að koma einum manni frá,“ sagði Bjarni Benediktsson í ræði sinnu á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins nú fyrir skömmu.
Sjálfstæðisstefnan brást ekki
Hann sagði að hamast hefði verið á Sjálfstæðisflokknum í fjölmiðlum og hvar sem fólk hafi komið saman. Fólkið í flokknum hefði vart getað borið hönd fyrir höfuð sér. „Það er sagt að flokkurinn hafi brugðist og að sjálfstæðisstefnan hafi svikið. Sitjum ekki undir því tali lengur. Vissulega fór margt rangt og við þurfum að líta í eigin barm,“ sagði Bjarni.
Ekki einangraður
Hann sagði einnig að flokkurinn hefði beðist afsökunar á því sem rekja mætti til hans. Það væri fásinna að halda því fram að sjálfstæðisstefnan sjálf bæri alla ábyrgð. „Þessi atburðir gerðust þrátt fyrir stefnu okkar, ekki vegna hennar. Látum engan segja okkur annað,“ sagði Bjarni og bætti því við að áður hefði verið reynt að einangra flokkinn í íslenskum stjórnmálum. Það hafi ekki tekst til þessa og muni ekki takast.
Þverskurður þjóðarinnar á Landsfundi
Bjarni sagði að aldrei hafi verið mikilvægara en einmitt nú að sjálfstæðisstefnan verði höfð að leiðarljósi við stjórn landsins. Hornsteinar flokksins væru trú og traust á þjóðinni og landinu.
Bjarni sagði að nýr formaður flokksins yrði í einstakri stöðu því enginn stjórnmálaflokkur á Íslandi byggi yfir jafn miklum mannauði og Sjálfstæðisflokkurinn. „Hér inni er þverskurður þjóðarinnar,“ sagði hann meðal annars.
Lélegur brandari
Bjarna talaði einnig um jafnréttismál. Krafa hans kynslóðar væri að breyta þeirri hugsun að konur og karlar stæðu ekki jafnfætis. Fyrir honum væri slík hugsun framandi. Einnig yrði flokkurinn að reyna að ná til ungs fólks sem gæti fært flokknum endurnýjaðan kraft.
Bjarni vék orðum sínum að núverandi ríkisstjórn og ríkisfjármálunum. „Eignaumsýslufélag í eigu ríkissins kann að vera neyðarúrræði. En í höndum vinstri stjórnar er það stórhættuleg hugmynd,“ sagði hann og bætti við: „Hver trúir því að Steingrímur J. Sigfússon muni mæla fyrir því að fyrirtækin verði einkavædda á nýjan leik. Það hljómar eins og lélegur brandari,“ sagði hann og bætti við að Íslendingar þyrftu á allt öðru að halda en forsjáráætlun vinstri stjórnar.
Silfurskeiðin í kokinu
Hann sagði ennfremur að það væri gamaldags pólitík að krefjast hærri skatta, líkt og vinstri stjórnin hefði lagt til. Það myndi bitna mest á barnafjölskyldum. „Ég mun berjast af öllum mætti fyrir hag heimilanna og fyrirtækjanna í landinu. Þetta er mitt loforð og ég geng út á völlinn til að hafa sigur,“ sagði Bjarni.
Bjarni sagðist ekki hafa farið varhluta af gagnrýni á ætterni sitt. Hann sagðist hafa haft gaman að miðopnu Fréttablaðsins í gær þar sem röntgenmynd sýndi að silfurskeiðin í munni hans næði langt ofan í kok. „Ég hef gaman að svona skotum og kveinka mér ekki. Þaðan af síður dettur mér í hug að biðjast afsökunar á uppruna mínum eða ætterni.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna