ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.3° 2m/s E

Davíð fór mikinn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:03 › 28. mars 2009
Davíð Oddsson hélt ræðu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins og fór mikinn.

Davíð Oddsson hélt ræðu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins og fór mikinn. Mynd Sigtryggur Ari Jóhannsson

Davíð Oddsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, fór mikinn í ræðu sinni sem hann hélt á landsfundi flokksins í dag. Davíð gagnrýndi minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna harkalega og sagði hana verklausa, auk þess sem hann gagnrýndi Baug og nýjan seðlabankastjóra harðlega. Varpaði Davíð fram þeirri spurningu hvort fjárfestingarbankinn Straumur hafi farið á hausinn vegna vanþekkingar hans.

Google þekkir ekki seðlabankastjóra
Davíð fjallaði í upphafi ræðu sinnar um það þegar honum var bolað burt af stóli seðlabankastjóra og Norðmaðurinn Svein Harald Oygard var skipaður í hans. „Þeir réðu lausamann úr norska verkamannaflokknum sem ekki nokkur maður hefur heyrst mann á. Ekki einu sinni Google sem þekkir þó marga og gerðu þennan norska mann að seðlabankastjóra yfir íslenskum banka. Þannig hefur engin þroskuð þjóð hagað sér,“ sagði Davíð.

Svein Harald með Alzheimer
Davíð sagði einnig að Svein Harald sé annað hvort lygari eða með Alzheimer. „Það var þó ekki traustvekjandi þegar hann var spurður hvenær hefði verið rætt við hann. Þá sagðist hann ekki muna það. Þetta var sérkennilegt og mjög alvarlegt svar. Annað hvort hefur hann Alzheimer á háu stigi eða hann hefur sagt ósagt. Ég vona að það sé Alzheimer,“ sagði Davíð en Svein Harald sagðist ekki muna hvenær fyrst hefði verið rætt við hann um að taka að sér embætti seðlabankastjóra.

Nektarsýningar og efnahagsmál
Davíð fjallaði stuttlega um þær umræður sem hafi verið á dagskrá þingsins að undanförnu. Nefndi hann að nektarsýningar á skemmtistöðum hafi verið ræddar mikið síðustu daga þingsins í bland við efnahagsmálin. „Auðvitað á ég að vera þakklátur fyrir það að ríkisstjórnin hafi ekki sameinað þessi tvö mál sín. Því ef þeir hefðu gert það, þá gætu þeir falið mér það þar sem ég er nú án vinnu að sjá um þær nektarsýningar sem fram þurfa að fara.“

Af hverju ekki Baugur
Davíð gerði mótmælin mánuðina eftir bankahrunið einnig að umtali og furðaði sig á því af hverju mannfjöldinn hefði aldrei farið að höfuðstöðvum Baugs. Davíð samdi stutta vísu í tilefni þess sem vakti mikla lukku meðal lanfsfundargesta. Þá spurði hann hvar Raddir fólksins væru núna þegar virkileg þörf væri á aðgerðum.

Samfylking og Baugur
Davíð réðist í ræðu sinni að Samfylkingunni og sagði að hún hafi í gegnum árin unnið í náinni samvinnu við Baug í að komast í forystu. Allt hafi verið lagt undir árið 2003 en þá hafi það mistekist. Það hafi verið reynt aftur 2007 og aftur mistekist. Sjálfstæðisflokkurinn hefði hinsvegar tekið flokkinn upp á arm sinn og fyrir það eigi Sjálfstæðisflokkurinn að biðja þjóðina afsökunar.

Örlög fjölmiðlaganna
Davíð sagði einnig að örlög fjölmiðlalaganna hefðu verið afar slæm fyrir þjóðina. Örlög laganna hefðu fært útrásarvíkingum þá trú að þeir væru ósnertanlegir. Davíð sagði einnig að hann hefði hitt starfsmann 365 á förnum vegi og til umtals hafi komið brotthvarf Sigmundar Ernis frá Stöð 2. Davíð segir að þessi starfsmaður hafi gert lítið úr brotthvarfi hans og hafi sagt við hann: „Hann er bara að færa sig um stað innan samsteypunnar,“ og þannig átt við innan Baugsveldisins. „Það er búið að stunda grímulausan áróður úr þessari átt. Sannleikurinn er seigari en þetta lið lætur. Hann hefur betur að lokum,“ sagði Davíð.

Sjá einnig:

„Jóhanna lítur út eins og álfur“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.