ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Dagur kjörinn varaformaður

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:29 › 28. mars 2009
Dagur B. Eggertsson er nýr varaformaður Samfylkingarinnar.

Dagur B. Eggertsson er nýr varaformaður Samfylkingarinnar. Mynd DV

Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, var rétt í þessu kjörinn varaformaður Samfylkingarinnar. Hann hlaut 65,6 prósent atkvæða en Árni Páll Árnason, sem bauð sig einnig fram, fékk 33,9 prósent atkvæða.

993 greiddu atkvæði og var kosningaþátttaka 93,1 prósent.

„Við ætlum að sameina þjóðina sem eini flokkurinn með plan. Við ætlum að sækja um aðild að Evrópusambandinu eftir kosningar og við bjóðum til samstarfs um það,“ sagði Dagur B. Eggertsson þegar hann steig í pontu eftir að þetta var tilkynnt.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.